27.2.2010 | 15:11
Eyjapistill 28. desember 1973
27.2.2010 | 13:58
Eyjapistill 4. janúar 1974
Umsjón: Arnþór og Gísli Helgasynir.
1. Gísli les bréf frá Gísla Þorsteinssyni bæjarritara, þar sem sagt er frá vettvangi bæjarmála.
2. Arnþór lýsir eftir höfundi ljóðabréfs og segir frá skýrslu um rannsóknir á vikri með tilliti til útflutnings. Skýrsluna samdi Magnús G. Björnsson hjá áætlunardeild framkvæmdastofnunar ríkisins. Fjallað um hugsanlega stofnum Norsks-Vestmannaeysks hlutafélags um málið.
3. Gísli les nokkur bréf.
4. Gísli les fyrirspurn frá Eyjum hvort selja ætti hús Viðlagasjóðs í Mosfellssveit á "toppverði" eins og það er orðað. Hallgrímur Sigurðsson framkvæmdastjóri Viðlagasjóðs svarar því.
5. Gísli segir frá áramótum í Eyjum og fleiru.
Lesin listi yfir börn, sem skírð voru í Eyjum um jólin, og sagt frá giftingum.
Í þættinum eru leikin lög af jólaplötu með Þremur á palli.
Heildartími 29.11 mín.
27.2.2010 | 13:54
Eyjapistill 14. janúar 1974
Umsjón: Arnþór og Gísli Helgasynir.
1. Arnþór segir fréttir frá Eyjum. Gísli og Arnþór ræða við Magnús Magnússon bæjarstjóra um byggingaráætlun Vestmannaeyjakaupstaðar. Magnús segir frá því húsnæði sem í boði er og fjölda þeirra, sem fluttir eru til Eyja. Magnús segir einnig frá fyrirhugaðri viðgerð á vatnsleiðslunni til Eyja, rafmagnsmálum og hreinsun hraunsins. Viðtalið er hljóðritað þegar Magnús og Marta kona hans voru að pakka niður og flytja aftur til Eyja.
Heildartími 20.27 mín.
27.2.2010 | 13:48
Eyjapistill 18. janúar 1974
Umsjón: Arnþór og Gísli Helgasynir.
1. Gísli ræðir við Einar Hauk Eiríksson skattstjóra um skattamál og skattgreiðslur. Fram kemur að vandamál er að vita hvar sumir dvelja. Rætt um heimflutning skattstofunnar. Fram kemur að um 40% Eyjamanna séu fluttir heim.
2. Arnþór segir frá því að eiginlegir Vestmannaeyingar séu 2230 talsins. Hann les svo tilkynningu.
3. Séra Þorsteinn Lúther Jónsson mælir nokkur orð í tilefni þess að senn er liðið ár frá gosi.
4. Stefán Runólfsson hringir í Arnþór beint í þáttinn. Dæmigert um það, sem gerðist oft í Eyjapistlum að fólk hringdi og samtölum var útvarpað. Stefán ræðir um atvinnulífið í Eyjum og segir frá því hvernig Fiskiðjan kom undan hrauninu.
5. Arnþór segir fréttir frá Útvegsbændafélagi Vestmannaeyja, en þar kemur fram um fjölda báta, sem leggja upp í Eyjum. Fleiri fréttir.
6. Auglýsing frá Þórði Magnússyni á Skansinum um týnda muni.
7. Arnþór les lista yfir þá, sem fengið hafa Viðlagasjóðshús í Breiðholtinu og les svo auglýsingu um týnda muni.
Heildartími 29.15 mín.
27.2.2010 | 13:41
Eyjapistill 21. janúar 1974
Umsjón: Arnþór og Gísli Helgasynir.
1. Arnþór segir frá því að frá og með næstu viku verði Eyjapistill einu sinni í viku. Þá segir hann frá heimflutningi Útvegsbankans til Eyja og afgreiðslu fyrir Vestmannaeyinga í Reykjavík.
2. Arnþór segir frá nokkrum merkisafmælum.
3. Arnþór les kvæðið Óskalandið eftir Pál H. Árnason í Þórlaugargerði, en það barst Eyjapistli í vetur.
4. Gísli talar frá Eyjum og segir frá innbroti í Félagsheimilið við Heiðarveg.
Gísli ræðir við Magnús Magnússon bæjarstjóra á bæjarskrifstofunum m.a. um notkun hitans í hrauninu til kyndingar húsa. Segir frá tilraunum Sveinbjörns Jónssonar í Ofnasmiðjunni við hraunhitaveituna.
Gísli segir frá því að Hótel HB sé að fara í gang með nýjum eigendum.
5. Sagt frá afhendingu æðsta merkis sem óbreyttum borgurum í Bandaríkjunum er veitt, en Sveinn Eiríksson á Keflavíkurflugvelli hlaut það. Jafnframt sagt frá viðurkenningu Vestmannaeyjakaupstaðar til starfsmanna slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli og starfsmanna varnarliðsins. Arnþór segir einnig frá uppgjöri á milli Vestmannaeyinga og Viðlagasjóðs og hreinsun hraunsins.
Heildartími 17,14 mín.
27.2.2010 | 13:36
Eyjapistill 23. janúar 1974
Umsjón: Arnþór og Gísli Helgasynir.
Þátturinn gerður í tilefni ársafmælis gossins.
Í upphafi þáttarins segir að fyrsti Eyjapistillinn hafi verið fluttur 7. febrúar 1973. Hið rétta er að fyrsti þátturinn var fluttur 6. febrúar í umsjón Stefáns Jónssonar fréttamanns sem þá var dagskrárfulltrúi hjá Ríkisútvarpinu. Daginn eftir þann 7. febrúar tóku Arnþór og Gísli við umsjón þáttarins. Gunnar Sigurmundsson prentari (gunnar prent) var fyrst í stað með í gerð þáttanna sem fulltrúi og tengiliður við bæjarstjórn Vestmannaeyja.
1. Gísli hefur þáttinn og kynnir símtal, þegar Páll Helgason bróðir hans hringdi í hann aðfararnótt 23. janúar 1973. Símtalið flutt og Páll lýsir gosinu eins og hann sá það út um gluggann hjá sér og svo önnur lýsing eftir að hann hafði farið að gosstöðvunum. Samtölin hljóðrituð um kl. 2 aðfararnótt 23. janúar og um kl. 3 sömu nótt.
2. Arnþór og Gísli fara í heimsókn til Péturs Guðjónssonar á Kirkjubæ og Lilju Sigfússdóttur konu hans, þar sem þau búa í Garðinum. Þeir ræða við þau og Pétur segir skemmtilega frá því hvernig og hvenær hann varð var við gosið, og hvernig þeim reiddi svo af. Góð lýsing á leiðinni til lands. Pétur og Lilja segja frá dvöl í Elliðaey og Pétur minnist aðeins á braginn Elliðaeyjarbrag. Lilja og Pétur fjalla um ástæður þess að þau flytja ekki aftur heim til Eyja. Á eftir samtalinu er Elliðaeyjarbragurinn leikinn með Árna Johnsen.
3. Arnþór ræðir við Hjálmar Guðnason frá Vegamótum, en Hjálmar sá ásamt Ólafi Grens þegar gosið hófst. Í spjallinu er einnig vikið að Lúðrasveit Vestmannaeyja.
4. Gísli talar frá Eyjum og ræðir við Pétur Ingjaldsson ýtustjóra, sem vinnur við vegalagningu uppi á nýja hrauninu. Samtalið hljóðritað uppi á hrauni 22. janúar 1974. Pétur segir frá því þegar þeir unnu uppi á hrauninu í gosinu.
5. Páll Helgason lýsir útsýninu frá nýja hrauninu yfir höfnina og breyttum aðstæðum þar, en mjög hvasst var, þegar þessi lýsing var gerð, suðaustan beljandi með rigningu.
6. Arnþór les smá tilkynningu og þakkir til allra landsmanna.
Heildartími 37.17 mín.
27.2.2010 | 13:30
Eyjapistill 25. janúar 1974
Umsjón: Arnþór og Gísli Helgasynir.
1. Arnþór hefur þáttinn og segir frá þakkarguðsþjónustu í Eyjum 23. janúar 1974, greinir frá ástandi kirkjuorgelsins og segir fleiri fréttir.
2. Arnþór segir fréttir af Sparisjóði Vestmannaeyja og les tilkynningu.
3. Gísli spjallar við Jónas Guðmundsson um íbúðir fyrir aldraða, sem Rauði krossinn starfrækir við Brekkulæk og Síðumúla í Reykjavík.
4. Gísli talar frá Eyjum og segir fréttir þaðan.
Gísli ræðir við Arnar Sigurmundsson forstöðumann skrifstofu Viðlagasjóðs um starfsemi skrifstofunnar og starfsemi sjóðsins í Eyjum.
Líklega vantar aftan á þáttinn. Hann endar nokkuð snubbótt.
Heildartími 16.36 mín.
27.2.2010 | 13:12
Eyjapistill 4. febrúar 1974
Umsjón: Arnþór og Gísli Helgasynir.
1. Árni Sigfússon segir fréttir frá Vestmannaeyjum. Árni var fréttaritari Eyjapistils í Eyjum frá áramótum 1974. Árni fjallar aðallega um félagsstarf í Eyjum. Þegar þessi þáttur er yfirfarinn 11. mars 2008 er Árni bæjarstjóri Reykjanessbæjar.
2. Gísli fer í heimsókn í íbúðir aldraðra við Síðumúla.
Ræðir fyrst við Bjarneyju Steingrímsdóttur, spyr hvenær hún hafi orðið fyrst vör við gosið. Spjallar um fleira. Átakanlegt þegar hún lýsir viðskilnaðinum við heimili sitt.
Gísli hittir á Brekkulæknum Ágúst Þórðarson á Aðalbóli, en hann var yfir fiskimatsmaður og um skeið formaður Verkalýðsfélags Vestmannaeyja. Ágúst segir frá því hvernig honum hafi reitt af eftir gosið. Ágúst minnist á sumardvöl í Noregi og að Löngumýri í Skagafirði.
3. Gísli spjallar við Harald Guðnason bókavörð um bókasafnið og fleira.
Heildartími 14.42 mín.
27.2.2010 | 13:04
Eyjapistill 11. febrúar 1974
Umsjón: Arnþór og Gísli Helgasynir.
1. Gísli hefur þáttinn með almennu spjalli um Eyjapistil í tilefni þáttarins, en nú er liðlega ár liðið frá upphafi Eyjapistils. Þessi þáttur er nr. 255. Rifjað upp úr fyrsta þættinum um tilgang þáttarins. Segir fleiri fréttir og frá könnun um hversu margir hyggðust snúa til Eyja og hvenær. Spjallar frekar um tilgang þáttarins.
2. Anna Þorsteinsdótir les tilkynningu frá kvenfélaginu Líkn. Les í gegnum síma án þess að vita að þessu yrði útvarpað beint. Arnþór segir frá fleiru.
3. Árni Sigfússon talar frá Eyjum og segir m.a. frá stofnun nýs blaðs og fleiru.
4. Gísli ræðir úti í Eyjum við Hjört Hermannson formann byggingafélagsins Hamars um stofnun félagsins og fyrirhugaðar framkvæmdir á vegum þess. Hjörtur svarar því hvers vegna þeir hafi valið svæðið vestast á Hamrinum til bygginga.
5. Arnþór segir fleiri Eyjafréttir, einkum af bátum.
Þá eru fréttir af Fesinu og Gúanóinu.
Heildartími 20.15 mín.
27.2.2010 | 12:58
Eyjapistill 11. mars 1974
Umsjón: Arnþór og Gísli Helgasynir.
1. Arnþór kynnir þáttinn, segir frá fólki, sem fær aðsetur í gamla sjúkrahúsinu og les tilkynningu frá Viðlagasjóði um að hann hætti ábyrgð á húsum í Eyjum frá og með 1. apríl. Einnig minnst á kynningu á byggingaráætlun Vestmannaeyja o. fl., m. a. um afhendingu húsa frá Kanadamönnum til Vestmannaeyinga í Hafnarfirði.
2. Leikið lagið Heimaey eftir Árna Sigfússon af plötunni Eyjaliðið, sem kom út í gosinu. Árni Sigfússon les fréttir frá Eyjum og segir m.a. frá væntanlegum bæjarstjórnarfundi, aflabrögðum, hljómsveitinni Logum, sem komin er til Eyja, frá niðursetningu húsa við Faxastíg og fleira.
3. Gísli ræðir úti í eyjum við Ragnar Guðmundsson rakara (Ragga rakara) um rakarastörf, störf Ragga í gosinu og fleira, en Raggi var bunustokksmaður og gosvörður. Hann lýsir hraunáhlaupi nr. 2. Spjallið er mjög skemmtilegt. Þá segir Ragnar álit sitt á hraunkælingunni og kynnum sínum af gosinu. Einnig frá því hvernig "sá dökki" kvaddi hann.
Heildartími 20.21 mín.
Um bloggið
Eyjapistill
Tenglar
Mínir tenglar
- Hljóðbók.is
- Arnþór Helgason bloggar
- Eyjafréttir.is Fréttir vikublað Vestmannaeyja
- Heimaslóð.is Skemmtilegur vefur um menningu Vestmannaeyja
- Átvr Átthagafélag Vestmannaeyinga á reykjavíkursvæðinu
- Hljóðrit Á síðunni er margvíslegt hljóðritað efni frá Arnþóri Helgasyni. Þar á meðal er sitthvað um Vestmannaeyjar undir flokknum Sögur af sjó.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar